Nú er hægt að fá persónulegt afmæliskort. Þú velur nafnið, aldurinn og bakgrunnslitinn. Margir litir í boði. Upplagt að gefa þegar ætlunin er að gefa peningagjöf. Kemur í hvítu umslagi. Sent heim innpakkað í hörðum spjöldum. Upplagt að setja svo kortið í myndaramma og hengja uppá vegg. Plastvasi fylgir inní kortinu ef hakað er við peningagjöf. Sýnishornið sýnir kort fyrir 70 ára með nafninu Jóhann og er bakgrunnurinn ljósblár (nr. 7). Kortið er skorið út í Cricut vél.
Stærð: 14 x 19,5 cm
Efni: Skorið út í 180 gr hvítum pappír. Bakgrunnslitur er 180 gr.
Kortin voru sérhönnuð fyrir Perla design.
Verð: 1490 kr. ef keypt með annari vöru.
Verð: 2490 kr. ef keypt sér.